Skip to content
Verklagnir
All news

Verklagnir fyrst á Íslandi sem Samsung Premium Partner

At a glance

Verklagnir hafa hlotið viðurkenninguna Samsung Premium Partner og eru fyrsti og eini samstarfsaðili Samsung á Íslandi með þá viðurkenningu. Hún er staðfesting á samstarfi okkar við Samsung, sérþekkingu og þjónustu á sviði varmadæla.

Published · 2 min read

Mette Engström afhendir Verklögnum viðurkenninguna Samsung Premium Partner.
On this page

Need advice?

We can help you find the right solution for your building.

Contact us

Við erum stolt af því að vera fyrsti og eini Samsung Premium Partner á Íslandi. Mette Engström afhenti okkur viðurkenninguna fyrir hönd Samsung þann 18. september, þegar við tókum á móti viðskiptavinum og samstarfsaðilum í nýjum sýningarsal okkar að Krókhálsi 5A.

Viðurkenning á sérþekkingu og þjónustu

Samsung Premium Partner er mikilvæg viðurkenning á því samstarfi sem við höfum byggt upp við Samsung. Hún endurspeglar sérþekkingu okkar á varmadælum og þá áherslu sem við leggjum á vandaða ráðgjöf og þjónustu.

Fyrir okkur snýst góð ráðgjöf um að finna lausn sem hentar hverju húsnæði. Við aðstoðum viðskiptavini við að velja búnað út frá þörfum sínum og útskýrum hvað þarf að hafa í huga við val á varmadælu. Viðurkenningin er okkur hvatning til að halda áfram þeirri vinnu og efla þekkingu okkar á lausnum Samsung.

Samstarf sem hófst árið 2024

Árið 2024 gerðum við samning við Samsung um að verða umboðsaðili Samsung Climate Solutions á Íslandi og annast innflutning, sölu og þjónustu á hita- og kælilausnum fyrirtækisins. Síðan höfum við unnið að því að byggja upp vöruframboð og sérþekkingu sem nýtist íslenskum heimilum og fyrirtækjum.

Á þessu ári sóttum við jafnframt námskeið hjá Samsung í Hollandi og undirrituðum samning tengdan SmartThings Pro hússtjórnarkerfinu. Það samstarf er hluti af áframhaldandi uppbyggingu okkar á sviði snjallra lausna fyrir byggingar.

Við þökkum Samsung fyrir traustið og viðskiptavinum okkar og samstarfsaðilum fyrir samstarfið. Við hlökkum til að halda áfram að finna réttu lausnirnar með ykkur.