Persónuverndarstefna
Vefsíðan www.verklagnir.is · Verklagnir ehf. · kt. 460199-2479
Útgáfa 1.0 · Síðast uppfært: 12. október 2026 · Gildir frá: útgáfudegi
Samantekt
Þessi samantekt dregur saman helstu atriði um hvernig við meðhöndlum gögnin þín. Hún er ekki lagalegt skjal. Fyrir fyllri upplýsingar vinsamlegast lestu alla persónuverndarstefnuna hér að neðan, sem er sú útgáfa sem gildir lagalega.
- Verklagnir ehf. ber ábyrgð á persónuupplýsingunum. Við söfnum aðeins því sem við þurfum til að svara þér, veita þjónustu og reka vefinn.
- Greiningar- og markaðskökur eru aðeins notaðar með þínu samþykki.
- Við seljum ekki persónuupplýsingar. Þjónustuaðilar sem vinna fyrir okkur fá aðeins það sem þeir þurfa.
- Viðhengi sem þú sendir eru eydd strax eftir sendingu. Stafræni ráðgjafinn notar gervigreind, svo skráðu ekki persónuupplýsingar í frjálsa textareiti hans.
- Þú getur hvenær sem er beðið um aðgang, leiðréttingu eða eyðingu á info@verklagnir.is, og eytt aðgangi þínum sjálf(ur).
- Ef þú ert ósátt(ur) getur þú kvartað til Persónuverndar.
Hver við erum
Verklagnir ehf., kt. 460199-2479, Krókháls 5A, 3. hæð, 110 Reykjavík, er ábyrgðaraðili þeirra persónuupplýsinga sem lýst er hér. Stefnan gildir um vefsíðuna www.verklagnir.is og þjónustu sem henni tengist. Við vinnum persónuupplýsingar í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og almennu persónuverndarreglugerð ESB (GDPR). Spurningar má senda á info@verklagnir.is eða í síma 517 0270.
Hvaða upplýsingum við söfnum og hvers vegna
Við söfnum aðeins því sem við þurfum. Lagagrundvöllur hverrar vinnslu er tilgreindur í sviga.
- Fyrirspurnir og þjónustubeiðnir: nafn, netfang, símanúmer, skilaboð og, í þjónustubeiðni, heimilisfang, upplýsingar um búnað og viðhengi (myndir og skjöl). Við notum þær til að svara þér og veita þjónustu. (Nauðsyn vegna beiðni þinnar eða samnings, og lögmætir hagsmunir okkar af að svara fyrirspurnum.)
- Stafrænn ráðgjafi: svör þín um húsnæði og hitakerfi. Þau eru vistuð í vafranum þínum og berast okkur aðeins ef þú sendir fyrirspurn. Svörin eru greind með gervigreind (OpenRouter og TypeSafe) til að leggja til varmadælu; nafn, netfang og símanúmer eru ekki send þangað, en frjáls texti sem þú skrifar í ráðgjafann er sendur. Skráðu því ekki persónuupplýsingar í hann. Sérfræðingur fer yfir tillögurnar og við tökum engar ákvarðanir með réttaráhrif á þig eingöngu með sjálfvirkri vinnslu. (Nauðsyn vegna beiðni þinnar, og lögmætir hagsmunir.)
- Notendaaðgangur: nafn, netfang, lykilorð (geymt í dulkóðaðri mynd), tengsl við fyrirtæki og upplýsingar um innskráningar, þar á meðal IP-tölu. (Nauðsyn vegna samnings um aðganginn.)
- Viðburðir: nafn, netfang, símanúmer og fyrirtæki. Sá sem skráir hóp getur einnig skráð upplýsingar um aðra þátttakendur. (Nauðsyn vegna skráningar, og lögmætir hagsmunir.)
- Öryggi: IP-tala og fjöldi beiðna, til að verjast misnotkun og árásum. (Lögmætir hagsmunir okkar af öruggum rekstri.)
- Greining og markaðssetning (Google Analytics og Meta Pixel): aðeins með þínu samþykki. Sjá vafrakökustefnu okkar á www.verklagnir.is/vafrakokur. (Samþykki, sem þú getur afturkallað hvenær sem er.)
- Viðskipti og ábyrgðarmál: nafn, kennitala, heimilisfang, reikningar og samskipti vegna ábyrgðar. (Nauðsyn vegna samnings og lagaskylda, t.d. bókhaldslög.)
Ef þú gefur ekki upp upplýsingar sem merktar eru nauðsynlegar getum við ekki svarað erindi þínu, stofnað aðgang eða skráð þig á viðburð. Vinsamlegast sendu okkur ekki viðkvæmar upplýsingar, svo sem um heilsufar.
Hverjum við miðlum upplýsingum
Við seljum ekki persónuupplýsingar. Við notum þjónustuaðila sem vinna með upplýsingar fyrir okkar hönd á grundvelli vinnslusamninga: Vercel (hýsing), Neon (gagnagrunnur), Microsoft (tölvupóstur), Bunny.net (dreifing mynda og skráa), Algolia (leit), OpenRouter og TypeSafe (gervigreind), Better Auth (innskráning og öryggi), og, með samþykki þínu, Google og Meta. Við miðlum upplýsingum til yfirvalda þegar lög krefjast þess.
Vefurinn er hýstur hjá Vercel á gagnaverum í Evrópu (Stokkhólmi, Dyflinni, Lundúnum og Frankfurt) og gagnagrunnurinn er hjá Neon í Lundúnum. Sumir þjónustuaðilar okkar eru í Bandaríkjunum. Þá tryggjum við fullnægjandi vernd, t.d. með stöðluðum samningsákvæðum Evrópusambandsins eða á grundvelli vottunar samkvæmt Data Privacy Framework.
Hversu lengi við geymum upplýsingar
Fyrirspurnir eru geymdar í tölvupósthólfi okkar þar til við eyðum þeim, og þú getur hvenær sem er beðið um að þinni fyrirspurn sé eytt. Viðhengi er eytt strax þegar tölvupóstur hefur verið sendur, og í síðasta lagi innan sólarhrings. Notendaaðgangur er geymdur á meðan hann er til, og þú getur eytt honum sjálf(ur) undir „Minn aðgangur“. Viðburðaskráningar eru geymdar þar til þeim er eytt, og þú getur afskráð þig eða eytt aðgangi hvenær sem er. Bókhaldsgögn eru geymd í 7 ár samkvæmt lögum. Þegar upplýsinga er ekki lengur þörf eyðum við þeim eða gerum þær órekjanlegar.
Öryggi
Við notum dulkóðaðar tengingar, dulkóðaða geymslu lykilorða, aðgangsstýringu og hraðatakmarkanir til að vernda upplýsingar. Viðhengi eru geymd í lokaðri geymslu og eytt strax eftir sendingu.
Réttindi þín
Þú átt rétt á að fá aðgang að upplýsingum um þig, láta leiðrétta þær eða eyða þeim, takmarka vinnslu, fá þær fluttar til annars aðila og andmæla vinnslu sem byggir á lögmætum hagsmunum okkar. Þú getur afturkallað samþykki hvenær sem er. Sendu beiðni á info@verklagnir.is. Við svörum án tafar og í síðasta lagi innan mánaðar. Við kunnum að þurfa að staðfesta hver þú ert.
Ef þú telur að vinnsla okkar brjóti í bága við lög geturðu kvartað til Persónuverndar, Rauðarárstíg 10, 105 Reykjavík, sími 510 9600, postur@personuvernd.is, www.personuvernd.is. Við hvetjum þig til að hafa fyrst samband við okkur.
Börn
Vefsíðan er ekki ætluð börnum yngri en 18 ára.
Tungumál
Persónuverndarstefna þessi er gefin út bæði á íslensku og ensku. Komi fram misræmi eða ósamræmi milli ensku þýðingarinnar og íslensku útgáfunnar skal íslenska útgáfan gilda og vera bindandi.
Breytingar á stefnunni
Við getum uppfært þessa stefnu. Nýjasta útgáfan er alltaf birt hér ásamt dagsetningu síðustu uppfærslu.