Fara í meginmál
Verklagnir
Samsung EHS Mono R290 með dælu

Samsung · Loft í vatn

Samsung EHS Mono R290 með dælu

Loft í vatn

Verð samkvæmt tilboði

Veldu stærð

Nýjustu monobloc dælurnar í EHS línunni hjá Samsung. EHS Mono R290 notar nýjasta og umhverfisvænasta kælimiðilin á markaðinum R290.

  • Einstaklega hljóðlát (niður í 35 dBA)
  • Nýr R290 kælimiðill
  • SmartThings gervigreind
  • Virkar við -25°C

Nýjustu dælurnar í EHS línunni.

EHS Mono R290 dælurnar eru sérhannaðar fyrir hitun á heimilum. Í boði í fjórum stærðum, 5, 8, 12 og 16 kW. Dælurnar geta hitað neysluvatn í allt að 75°C við -10°C útihita og virkar niður i -25°C.

  • R290 kælimiðill sem hefur aðeins 3 GWP
  • Hitar vatn í allt að 75°C við -10°C útihita
  • SmartThings tenging fyrir hámarks orkusparnað

EHS R290

EHS línan hjá Samsung er loft í vatn línan þeirra. Nýjustu dælurnar eru gerðar fyrir R290 sem er nýjasti og umhverfisvænasti kælimiðillinn á markaðinum í dag. R290 hefur 3 GWP (global warming potential) til að setja það í samanburð þá er R-32 staðallinn í dag. R-32 hefur 675 GWP sem gerir nýja R290 miðilin margtfallt umhverfisvænni. Eftir 2025 verður R290 nýji staðallinn í Evrópu.

SmartThings tenging

Samsung dælurnar eru tengdar við SmartThings appið í símanum. Með SmartThings getur þú stjórnað dælunni þinni og heimilinu þínu.

  • Einfalt að setja upp
  • Einfalt og þægilegt í notkun
  • Stjórnaðu dælunni með símanum
  • Virkar með öðrum tækjum í SmartThings appinu
  • Virkar með bæði iOS og Android

Einstaklega hljóðlát

EHS Mono R290 er knúinn af frumlegri hávaðaminnkandi tækni með hljóðleiðni niður í 35 dBA með 4-þrepa hlj́óð stillingu. Tækið er með tvöföldu hljóðeinangrunarkerfi með Samsung Groove Grid Felt tækni, sem hindrar og dregur í sig hávaða sem myndast af þjöppunarhlutum og titringi.

SmartThings gervigreind

Með Samsung SmartThings appinu getur þú notað gervigreindina til að spara orku. SmartThings orkusparnaðar gervigreindin lærir á umhverfið þitt og hvernig þú notar dæluna og reynir að spara orku án þess að þú verður var við einhvern mun.

Hvað fylgir með?

  • Útitæki fyrir Samsung EHS Mono R290 með dælu

    Útitæki

    EHS Mono R290 dælan

  • SmartThings appið á síma

    SmartThings appið

    Snjallstýing í appi, stjórnaðu dælunni hvaðan sem er

Vöruupplýsingar

Hljóðleiðni

Niður í 35 dBA

Orkuflokkur

Upp í A+++/A++

Afkastageta

Hitun (kW): upp í 5/8/12/16

Kæling (kW): upp í 5/8/12/14

Stærðir (HxBxD)

5 og 8 kW: 1270x850x500 mm

12 og 16 kW: 1270x1018x530 mm

Sölubæklingur