Fara í meginmál
Verklagnir
SWEP B15T lóðaður plötuvarmaskiptir

SWEP · Hitakerfi

B15T

Lóðaður plötuvarmaskiptir

Verð samkvæmt tilboði

Veldu stærð

B15T er mjór og langur lóðaður plötuvarmaskiptir frá SWEP. Hann hentar sérstaklega vel þegar hitamunurinn milli vökvanna er mjög lítill, varmaflæðið mikið og orkan þarf að nýtast vel.

  • Gerður fyrir mjög lítinn hitamun
  • Mjór og langur, aðeins 76 mm á breidd
  • Allt að 60 plötur
  • 316/316L ryðfrítt stál, kopar-lóðaður

Stærðir og mál

B15T fæst með allt að 60 plötum. Dragðu sleðann og sjáðu hvernig stærð og þyngd breytast með plötufjöldanum.

F1F2F3F4∧B 76D 40A 468C 432FramhliðG 7F 116E 20Hlið
Stærð tengjanna (E) fer eftir gerð tengis.
50

VerðTilboð

Þykkt (F)
116mm
Þyngd án tengja
6,45kg
Rásir
49
Hafa samband

Tengimöguleikar

Önnur tengi og sérmál fást ef þú óskar eftir því.

  • Skrúfgangur

    Skrúfgangur

  • Skrúfgangur (Ultra High Approved)

    Skrúfgangur (Ultra High Approved)

  • Lóðtengi

    Lóðtengi

Þrýstingur og hitastig

Hámarksþrýstingur lækkar þegar hitastigið hækkar. Dragðu sleðann til að sjá hönnunarþrýstinginn (PED) í hvorri rás við hvert hitastig.

Þrýstingur og hitastig35404550-200-1000100200300Hitastig (°C)Þrýstingur (bar)

Hitastig

20 °C

Rás 1

48 bar

Rás 2

48 bar

Smelltu á línuritið eða dragðu sleðann til að velja hitastig.

Efni, hreinsun og ending

Plöturnar eru úr 316/316L ryðfríu stáli og lóðaðar saman með kopar. Stærsta korn sem má vera í vökvanum er 1 mm, svo sía á heima á undan varmaskiptinum þar sem óhreinindi geta borist með. Í honum eru engar þéttingar og hann þarf yfirleitt ekkert viðhald. Safnist óhreinindi í hann má hreinsa hann á staðnum (CIP).

Nærmynd af bylgjumynstri í plötupakka

Vöruupplýsingar

Hámarksflæði

4 m³/h

Efni

316/316L ryðfrítt stál, kopar-lóðað

Hönnunarþrýstingur (PED)

Um 48 bar við stofuhita, sama í báðum rásum

Þyngd án tengja

1,25 + 0,104 × NoP kg

Hámarksfjöldi platna (NoP)

60

Rúmmál rásar

0,063 dm³ á hvora hlið

Þykkt (F)

4,00 + 2,24 × NoP mm

Mál (hæð × breidd)

468 × 76 mm

Mesta kornastærð í vökva

1 mm

Vottanir

PED (Evrópa), UL (Bandaríkin), KHK (Japan)

Gagnablað (PDF)

Við finnum rétta stærð með þér

Hvaða varmaskiptir hentar fer eftir verkefninu, hitastiginu og rennslinu. Sendu okkur upplýsingarnar og við finnum réttu stærðina, oftast úr því sem við eigum á lager.

Hafa samband

Það flýtir fyrir ef þú sendir okkur:

  • Til hvers á hann að vera: hitakerfi, neysluvatn, snjóbræðsla …
  • Aflið (kW), eða stærð hússins eða flatarins.
  • Hitastig frá hitaveitu.
  • Hitastig og rennsli beggja vegna, ef þú veist það.
  • Hvaða varmaskiptir er í notkun í dag, ef verið er að skipta um.