Fara í meginmál
Verklagnir

SWEP

SWEP

SWEP sérhæfir sig í nýstárlegum lausnum fyrir lóðaða plötuvarmaskipti (BPHE) frá stofnun árið 1983 og hefur þróast í alþjóðlegt fyrirtæki með yfir 1.110 starfsmenn, fimm framleiðslustaði og starfsemi í 50 löndum um allan heim. SWEP varmaskiptar hafa verið á Íslandi í mörg ár og reynst einnstaklega vel.

  • B10T

    • B-línan

    B10T er lítill lóðaður plötuvarmaskiptir frá SWEP úr 316/316L ryðfríu stáli. Hann hentar bæði fyrir vatn og kælimiðla og er auðvelt að laga hann að ólíkri notkun, til dæmis heitu neysluvatni, hitakerfum, snjóbræðslu og varmadælum.

  • B15T

    • B-línan

    B15T er mjór og langur lóðaður plötuvarmaskiptir frá SWEP. Hann hentar sérstaklega vel þegar hitamunurinn milli vökvanna er mjög lítill, varmaflæðið mikið og orkan þarf að nýtast vel.

  • B25T

    • B-línan

    B25T er lóðaður plötuvarmaskiptir frá SWEP með stærri plötum en B10T. Hann hentar vel fyrir vatn á móti vatni þegar álagið er mikið og sem þétti fyrir mikið afl. Hann er því rétta gerðin þegar verkefnið krefst meira afls úr einum varmaskipti.

  • B85

    • B-línan

    B85 er lóðaður plötuvarmaskiptir frá SWEP með stórum tengjum, allt að 160 plötum og 17 m³/h hámarksflæði. Hann hefur meiri varmaafköst en sambærilegar vörur og hentar fyrir þétta með mikið afl og krefjandi varmaflutning.

Náðu hámarks orkusparnaði

Við finnum hagkvæmustu lausnina fyrir þig!

Heyrðu í okkur og bókaðu ókeypis ráðgjöf með sérfræðingum í varmadælum